Hæhæ kominn heim

Já þá er kominn að
helgarblogginu sem ég lovaði ykkur elskurnar;**
Miðvikudagurinn: Um hádegið þá
keyrðum við suður eða já ég og öll fjölskyldan hennar Öldu -Geiri.
Þegar við vorum kominn tjölduðum við fellihýsinu og fórum svo
í Skeifuna þá fórum ég og Alda á KFC en hin fóru á MC donalds.
Fórum svo heim og fórum bara að sofa stuttu eftir
það
Fimmtudagurinn: Vöknuðum
klukkan 9

og horfðum á leik hjá
Geira bróðir Öldu. Og já sturtu og horfðum svo á annan leik
hjá þeim piltum. Svo fórum við Alda í Smáralind og versluðum
eitthvað. Svo heim (fellihýsið) að borða mjög góða kvöldmat. En svo
um 9 leitið fórum við í keilu með Guðrúnu
elsku;**.


Fórum svo heim í
LANGANN göngutúr um Reykjavik ALda littla villtist en ég
nátturulega rata því ég rata
allt
''Stolt''.


Föstudagur: Vöknuðum fórum í
sund svo að horfa á strákana spila.Svo í heimsókn til langömmu
hennar Öldu Svo í Kringluna og vorum
þar í nokkra klukkutíma og Alda verslaði sér helling en ég bara
afmælisgjöf, peysu,bol, tösku,nærföt. Fórum svo á Subway en svo kom
bróðir minn og náði í okkur en skutlaði Öldu heim en ég fór með
honum. Fór svo að taka mig smá til og fór og hitti Jón Atla á
stjörnutorgi þar sem hann sat að borða
fórum svo yfir í leikhúsið
og fórum á footlose(kann ekkert að skrifa það) því hann var svo
mikið æði að bjóða mér á það þessi ást takk elskan;**. En þetta
leikrit eða söngleikur var geðveikt skemmtilegt sko. Svo kom
brói og hans tengdó að ná í okkur og við skutluð Jón Atla heim og
ég fór með bróa heim.
Laugardagur: Fór að keppa við
ÍBV töpuðum þeim leik 5-4=/. fór svo til bróðir míns og við fórum í
einhverja veislu til mömmu Elsu það var fínt nema var að drepast í
hausnum og svima allan tímann þannig=/. En svo komum við heim
ætluðum í bíó en ég nennti ekki þvi eg var að drepast þannig við
tókum bara mynd á leigu og keyptum nammi.
En já
svo átti Jón Atli minn;**
afmæli þennan dag gat ekki gert afmælisblogg því ég fór
ekkert í tölvu þarna, fyrirgefðu mér það
ástin;**

Sunnudagur: vaknaði fór að
keppa við ÍBV aftur töpuðum þá 3-2 alltaf eitt mark:@. En já fór
svo í sturtu og var eitthvað að passa Vilmund
Mána
og fékk svo einhvern mexicoskan
hamborgara að hætti Þrastar haha hann var góður samt sko
. Síðan
seinna um kvöldið náðum við í Öldu og fórum á SigurRós tónleikana
sem voru GEÐVEIKIR váá var með gæsahúð ALLAN tímann sko!! Fengum
geðveikt góðan stað bara eiginlega besta hefðum getað farið alveg
að sviðinu en slepptum því samt. Ohh en nátturulega þurftu að vera
einhverjar gelgjur fyrir framan mig sem töluðu allan tímann langaði
að berja þær sko. Svo var stelpa eiginega alveg hliðin á mér sem
náði trommukjuðanum sem hann kastaði og það munaði engu að ég hefði
náð honum.
En já ég var á rólegu nótunum
þannig ég sleppti því. En já elska þessa hljósmsveit meira en váá
mikið
. Bara snilldar tónleikar get ekki sagt
annað

Mánudagur: Gisti hjá Öldu
vöknuðum um hádegi fórum svo á Laugarveginn og Alda
verslaði sér helling en ég bara einn bol og skó
.
En fórum svo á Pizza hött að fá okkur að borða ásamt fjölskyldunni
hennar Öldu síðan bara keyrðum við heim
Já snilldarferð get ekki sagt
annað
Koma bráðum myndir frá
henni.

Kveðja
Oddný Elva